1.11.2009
2009
Þrítugsárið mikla. Styttist óðum í daginn stóra.
Styttist líka í að Anna komi heim frá Afríkunni, brún og sæt. Hlakka til.
Gott að 2008 er liðið finnst mér, enda seinniparturinn af árinu erfiður fyrir þjóðina. 2009 verður það sennilega líka. Atvinnuleysi og kreppa... ótti og óöryggi um hvað koma skal. Verðum samt að vera jákvæð og halda áfram :)
2009 verður samt gott ár, ég finn það á mér og vil ekki trúa neinu öðru.
Er annars alveg hugmyndasnauð um skrif hingað inn.
Vonandi kemur andinn yfir mig fljótlega.
Langar að lokum að minnast Gumma frænda míns, bróður mömmu. Hann lést 3.janúar síðastliðinn eftir að hafa átt í baráttu við erfið veikindi. Vonandi líður honum vel á þeim stað þar sem hann er í dag. Guð blessi minningu hans.
F.
|

11.28.2008
Komin tími á ný skrif.
Kreppan er ríkjandi, með tilheyrandi ládeyðu og andleysi í fólki ásamt örvæntingu og hræðslu um hvað koma skal. Ég er ein af þeim sem lendi í 20% vinnuskerðingu í desember. Um leið og ég er döpur yfir því er ég samt sem áður mjög þakklát að halda minni vinnu og vona að það verði áfram í framtíðinni. Maður er bitur og ergilegur, svekktur og súr að svona sé komið fyrir þjóðinni og á svona skömmum tíma. Hverjum er að kenna? Bankastjórum, auðmönnum, ríkisstjórn, fjármálaráðuneyti. Mín reiði snýr að öllum þessum aðilum en þó fyrst og fremst bankastjórum og auðmönnunum. Mitt álit er að þeirra græðgi og fíkn sé búin að sökkva þjóðinni! Svo auðvitað á ríkisstjórnin sök að máli og fjármálaráðuneytið, og þessar litlu varnir sem voru til staðar.
Ég verð að viðurkenna að ég hálf vorkenni ríkisstjórninni núna, þá sérstaklega Geir, Ingibjörgu og Árna. Það hlýtur að vera erfitt að vera þau núna, endalaust áreiti og skítkast. Jú auðvitað er þetta þeirra hlutverk, þau stjórna jú landinu. Samt sem áður eru þetta persónur og getur varla þótt þetta auðvelt. Ég dáist líka að Geir að halda ,,kúlínu" eins og hann gerir og ef eitthvað þá hefur hann hækkað örlítið í áliti hjá mér eftir þetta allt. Er jafnvel að spá í að hringja í kauða og fá hjá honum ráð um ,,kúlið og hvernig skal halda því" heheheh.
Að öðru leyti er ég hress og er á leið á jólahlaðborð akkúrat núna...þess vegna verð ég að fara
Sjáumst ... later

9.24.2008
Hef tekið ákvörðun um að reyna að útskrifast næsta vor úr Mannauðsstjórnun, sem þýðir að ég þarf að vera dugleg að skrifa eftir áramót!! Planið var að reyna að klára þetta í febrúar, en ég held ég sé ekki að fara að ná því úr þessu. Þannig að vorið 2009 verður það!!
Styttist óðum í Köben. Verður ljúft að komast aðeins út fyrir landsteinana, þó við gætum varla verið að fara á verri tíma. Danska krónan nálgast 19 krónur og ,,kreppan" er á blússandi siglingu. Afskaplega er þetta tímabil lýjandi, verð bara að segja það. Allt að fara til fjandans í fjármálaheiminum. Mikið rosalega vonar maður að þetta taki enda fljótlega, en það er auðvitað ansi ólíklegt. Tekur eflaust langan tíma að ná þessu aftur á gott ról :/

9.08.2008
Er búin að setjast niður ansi oft og ætla að skrifa niður nokkrar línur hingað inn, en svo dett ég einhvern veginn alltaf úr gírnum og hætti við. Reyni hér við enn aðra tilraun.
Sumarið liðið og haustið gengið í garð. Engin skóli hjá mér þetta haustið, þar sem ég kláraði fögin mín í vor. Núna verð ég þó að fara að rífa mig í gírinn að skrifa ritgerðina. Það væri þó betra að ákveða fyrst hvað ég ætla að skrifa um, það er mesti höfuðverkurinn :/ Ef þið hafið hugmyndir þá þigg ég þær með þökkum.
Anna mín haldin á brott til Afríku og söknuðurinn mikill mín megin. Sit hér eftir og spyr sjálfan mig af hverju ég er ekki með þeim! Auðvitað hefði ég átt að fara með, ekki komin með börn og buru og ennþá ung og svona. Veit samt ekki hvað ég hefði gert við hann Styrmi minn.. hefði örugglega verið hálf lost án hans. En ég fer næst.. ég skal, ég get, ég vil! Er einmitt búin að vera að skoða alls konar ferðabækur og láta mig dreyma um að næsta sumarfrí verði á framandi slóðum, Asíu, Afríku, eða jafnvel Suður-Ameríku. Væri gaman að taka eins og mánuð á framandi slóðir. Veit ekki hvort ég sé endilega týpan í að fara í bakpokaferðalag, en ég væri samt svo til í að fara og heimsækja heiminn! Og ég mun gera það... það er klárt mál!!
Svo er Siggan mín horfin til London til Pablo. Hennar er líka sárt saknað héðan. Vona samt að allt gangi vel hjá henni og veit hún mun blómstra í landi Bretans.. :) Er strax farin að plana að heimsækja hana, hlakka strax til :)
Nú svo er ég byrjuð að vinna á skrifstofum Optical Studio. Sem sagt núna er ég ekki í búðinni heldur búin að færa mig um set. Verð þó um helgar þar, þannig að ef ykkur vantar gleraugu eða linsur og viljið fá hjálp mína þá bara bjallið þið á mig og ég mæti á kantinn :)
Mánudagur í dag, sem þýðir að ,,So you think you can dance" er í kvöld. Er alveg að missa mig yfir þessum þáttum. Alveg magnað hvað þetta er flott hjá þeim, væri meira en lítið til í að geta dansað svona!
Jæja enough for now
Over and out

7.21.2008
Sumarið 2008 meira en hálfnað og ég komin í sumarfrí aftur :)
Þar sem Marmaris var tekin með trompi í júní þá verður þetta sumarfrí tekið hér á klakanum. Veðurlega byrjar þetta kannski ekki alveg nógu vel. Búið að vera ofsalega fínt veður, en fyrsta daginn minn í fríi þá byrjar að rigna! En það þýðir ekkert að vera með neitt væl heldur reyna að gera gott úr þessu.
Pabbi minn besti verður sextugur næsta miðvikudag. Mér finnst hann ekki vera deginum eldri en fimmtugur, sver það! Þessar elskur skelltu sér á Rhodos og eru vonandi að eiga góðar stundir þar.
En svo er það verslunarmannahelgin. Alltaf sami hausverkurinn hvað skuli gera þá helgi.
Eru allir komnir með plan???

5.17.2008
Já sem sagt;
Hef lokið prófunum mínum, þeim lauk 15.maí, á fimmtudaginn. Afar yndislegt allt saman og loksins get ég farið að hlakka til að fara á Marmaris :)
Anna mín besta á svo afmæli í dag, óska henni innilega til lukku með það. Svo átti Styrmir minn sæti afmæli í gær sem og Guðrún Jóna. Margir góðir aðilar sem eiga afmæli í maí :) Linda er svo eftir og Inga Hlín líka.. allt að gerast!
Hreinsunardagur í dag hjá húsfélaginu. Farið út og sópað og spjallað og sópað aðeins meira. Fínt að kynnast nágrönnum sínum á þennan hátt. Svo er ég auðvitað bæði gjaldkeri og formaður þannig að ég verð að sýna lit og vera fyrirmyndin :)
En nú er það sumarið sem tekur við, sumarið 2008!
Knús til ykkar svona í tilefni dagsins.
Ykkar formaður, gjaldkeri, nemi, launþegi, vinur, vinkona, kærasta, systir, frænka, óvinur ( hope not samt), vinnufélagi og hvað fleira.... hmmmm
Miss Fanný K.

5.02.2008
2.maí.
Fyrsta próf á eftir
Verkefnastjórnun.
Gangi mér vel :)
|
Fyrsta próf á eftir
Verkefnastjórnun.
Gangi mér vel :)